Saman gegn sóun — Opinn fundur í Edinborgarhúsinu

Skrá nýjan viðburð


Frítt inn en skráning er nauðsynleg! Sjá Tickets hér að ofan.

HVAÐ?
• Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
• Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
• Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
• Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?
Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun.
Við erum að endurskoða stefnuna og við viljum heyra frá þér! Við verðum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 16. apríl frá kl. 13:00-15:30 þar sem þú færð tækifæri til að fræðast um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og koma með tillögur að aðgerðum.

FYRIR HVER?
• Öll!
• Starfsfólk fyrirtækja
• Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
• Nemendur
• Almenning

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?
• Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda og koma sjónarmiðum þínum eða þíns vinnustaðar á framfæri
• Fræðsla um hringrásarhagkerfið
• Innblástur frá fyrirtækjum á svæðinu
• Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga
• Tækifæri til að ræða við fólk og fyrirtæki af svæðinu um þessi mál

HVAR?
Edinborgarhúsið Ísafirði og í streymi.

DAGSKRÁ
• Starfsfólk Saman gegn sóun hjá Umhverfisstofnun segir frá verkefninu: Hver er staðan á Íslandi? Hvaða tækifæri eru til að gera enn betur?
• Erindi frá aðilum á svæðinu
• Samtal um aðgerðir

Viðburður á Facebook

Er hægt að bæta efnið á síðunni?