Útgáfa

Í hverri viku birtast á vef Ísafjarðarbæjar helstu fréttir um það sem hæst ber í sveitarfélaginu, svo sem tilkynningar um bæjarstjórnarfundi, framkvæmdir, þjónustu, viðburði og aðrar upplýsingar sem varða íbúa og gesti.

Önnur útgáfa sveitarfélagsins snýr að birtingu fundargerða, ársreikninga og þeirra stefna sem samþykktar eru hverju sinni.