Félagsmiðstöðvar

Í Ísafjarðarbæ eru reknar fjórar félagsmiðstöðvar fyrir ungmenni á aldrinum 13-16 ára. Þær eru staðsettar í kjallarara Sundhallarinnar á Ísafirði, í grunnskólunum á Þingeyri og Suðureyri og á lofti leikskólans Grænagarðs á Flateyri. Mikið og gott samstarf er á milli allra félagsmiðstöðvanna. Forstöðumaður hefur símanúmerið 450-8052 og póstfangið evaei(hjá)isafjordur.is.