488. fundur bæjarstjórnar

488. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar verður haldinn í gegnum fjarfundabúnað fimmtudaginn 20. janúar og hefst kl. 17.

Beina hljóðútsendingu af fundinum má finna hér.

Dagskrá

Almenn mál

1. Samningur um sorp 2022 - 2026 - 2021060034
Tillaga frá 114. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar sem fram fór 22 desember 2021, sem og 1183. fundi bæjarráðs sem fram fór 17. janúar 2022, um að bæjarstjórn samþykki framlengingu á samningi Ísafjarðarbæjar við Terra ehf, um sorphirðu og förgun í Ísafjarðarbæ, til tveggja ára, sbr. framlengingarákvæði í kafla 0.1.4. Framlenging skal öðlast gildi 1. janúar 2022.

2. Öldungaráð - reglur og samþykktir - 2019010059
Tillaga frá 1183. fundi bæjarráðs sem fram fór 17. janúar 2022, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á Samþykkt um öldungaráð Ísafjarðarbæjar, í samræmi við minnisblað sviðsstjóra, dags. 14. janúar 2022. Bæjarráð leggur jafnframt til við bæjarstjórn að velja sem formann ráðsins Sigrúnu Camillu Halldórsdóttur.
Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, í samræmi við minnisblað sviðsstjóra dags. 14. janúar 2022.

3. Byggðakvóti fiskveiðiárið 2021-2022 - 2021120088
Tillaga frá 1183. fundi bæjarráðs sem haldinn var 17. janúar 2022, um að bæjarstjórn samþykki sérreglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022 í Ísafjarðarbæ, þ.e. samskonar reglur og á síðasta fiskveiðiári, í samræmi við útfyllt eyðublað til ráðuneytisins.

4. Húsnæðissjálfseignarstofnun á landsbyggðinni - 2021100002
Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki að Ísafjarðarbær gerist aðili að Húsnæðissjálfseignarstofnun á landsbyggðinni (Landsbyggðar-hses.), sem fyrirhugað er að stofna, en stefnt er að því að það verði óhagnaðardrifið leigufélag í eigu sveitarfélaga á landsbyggðinni. Með því verði hægt að stuðla að byggingu hagstæðra leiguíbúða í sveitarfélaginu með stofnframlögum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Ísafjarðarbæ.

5. Nefndarmenn 2018-2022 - 2018050091
Tillaga bæjarfulltrúa B-lista Framsóknarflokks um að Sigríður Magnúsdóttir, verði kosin aðalmaður B-lista í velferðarnefnd, í stað Braga Rúnars Axelssonar. Þá verði Barði Önundarson kosinn varamaður B-lista í velferðarnefnd, í stað Sigríðar Magnúsdóttur.
Þá er tillaga bæjarfulltrúa B-lista Framsóknarflokks um að Harpa Björnsdóttir verði kosin formaður velferðarnefndar.

Fundargerðir til kynningar

6. Bæjarráð - 1182 - 2201005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1182. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 10. janúar 2022.
Fundargerðin er í 14 liðum.

7. Bæjarráð - 1183 - 2201009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1183. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 17. janúar 2022.
Fundargerðin er í 12 liðum.

8. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 573 - 2111012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 573. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 12. janúar 2022.
Fundargerðin er í fjórum liðum.

9. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 115 - 2112019F
Lögð fram til kynningar fundargerð 115. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem haldinn var 22. desember 2021.
Fundargerðin er í einum lið.