Árshátíð Ísafjarðarbæjar 2022

Árshátíð Ísafjarðarbæjar 2022

Þá er komin dagsetning fyrir árshátíð Ísafjarðarbæjar, en hún verður haldin laugardaginn 24. september næstkomandi í íþróttahúsinu Torfnesi. Boðið verður upp á ljómandi fína dagskrá sem útlistuð verður þegar nær dregur.

Þetta er augljóslega búin að vera löng bið, en við vonumst svo sannarlega til og erum raunar viss um að hún verði þess virði.

Ég vil hvetja alla til að taka þessa dagsetningu frá, því þarna gefst einstakt tækifæri til að hitta annað samstarfsfólk hjá Ísafjarðarbæ, taka spjallið, segja góðar sögur, hrista kroppinn og skemmta sér.

Mbk. Baldur

Er hægt að bæta efnið á síðunni?