Árshátíð Ísafjarðarbæjar 2022

Ágæta samstarfsfólk.

Þá er þetta loks að bresta á.

Árshátíð Ísafjarðarbæjar verður haldin laugardaginn 24. september í íþróttahúsinu Torfnesi. Bráðlega fer meðfylgjandi auglýsing upp á ykkar vinnustað, auk upplýsinga um hvað verður á matseðlinum þetta kvöld. Skráningareyðublað verður prentað út og látið liggja á glámbekk, en frestur til skráningar er veittur til og með 16. september.

Ég vil hvetja alla til að skrá sig, en að þessu sinni er verðið 5.900 kr. fyrir starfsmenn og 10.900 kr. fyrir maka eða gest.

Við vonumst til að sjá ykkur sem allra flest svo við getum átt saman skemmtilega kvöldstund.

Mbk. Baldur

Er hægt að bæta efnið á síðunni?