Íþróttir og aðstaða í Ísafjarðarbæ

Flest íþróttafélög á svæðinu starfa undir merkjum Héraðssambands Vestfjarða, HSV. Allar nánari upplýsingar um íþróttastarf og æfingar má finna á vef sambandsins, www.hsv.is.

Fimm íþróttahús eru í sveitarfélaginu. Tvö eru á Ísafirði; lítill salur í sama húsi og Sundhöll Ísafjarðar við Austurveg og stórt íþróttahús á Torfnesi. Á Suðureyri og Flateyri eru íþróttahús við hlið grunnskólanna, en á Þingeyri er íþróttasalurinn í sama húsi og sundlaugin. Á þessum þremur stöðum (Suðureyri, Flateyri og Þingeyri) rekur Ísafjarðarbær líkamsræktarsali, en á Ísafirði er slík aðstaða í einkarekstri.

Sparkvellir eru alls sjö í sveitarfélaginu og er þeim dreift víða; tveir eru á Ísafirði, tveir á Suðureyri, einn í Hnífsdal, einn á Flateyri og einn á Þingeyri. Þar að auki eru tveir stórir fótboltavellir á Torfnesi á Ísafirði, annar með grasþekju og hinn með gervigrasi.

Svigskíðasvæði er í Tungudal á Ísafirði og gönguskíðasvæði á Seljalandsdal, næsta dal fyrir ofan. Allar upplýsingar um opnunartíma og færi skíðasvæðanna má finna á www.dalirnir.is.

Mjög góð aðstaða er til hlaupa og hjólreiða í öllu sveitarfélaginu og má nefna sem dæmi að göngu- og hjólaleið er alla leið frá Bolungarvík og inn í Holtahverfi á Ísafirði, alls um 19 kílómetra leið í rótum brattra fjalla. Ágætt yfirlit yfir gönguleiðir er á kortasjá Ísafjarðarbæjar.

Ísafjarðarbær hvetur íbúa til íþróttaiðkunar, m.a. með lágum verðum á árskortum. Hægt er að fá aukaafslátt með því að kaupa saman árskort í sund og á skíðasvæði. Upplýsingar um verð eru í gjaldskrám.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?