Menntaskólinn á Ísafirði – Aðstoðarskólameistari

Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í bók-, list-, verknámi og á starfsbraut. Í skólanum er bæði kennt í stað- og fjarnámi. Um 40 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru um 450. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarnám.

Á heimasíðu skólans, www.misa.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið sem og gæðahandbók skólans en skólinn hefur fengið ISO-9001 gæðavottun. Skólinn hefur sömuleiðis fengið ÍST 85:2012 jafnlaunavottun. Skólinn er hástökkvari ársins 2022 í Stofnun ársins fyrir að vera sú ríkisstofnun sem bætti starfskjör starfsmanna best árið 2022.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðstoðarskólameistari:

  • er staðgengill skólameistara
  • vinnur með skólameistara að daglegum rekstri og stjórnun Menntaskólans á Ísafirði og þeirri starfsemi sem fellur undir skólann
  • starfar eftir starfslýsingu sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.misa.is
  • tekur þátt í faglegu starfi og starfsþróun með stöðugar umbætur í skólastarfi að leiðarljósi
  • vinnur eftir vottuðu gæðakerfi skólans

Hæfniskröfur

Aðstoðarskólameistari skal:

  • hafa hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019
  • hafa kennslureynslu í framhaldsskóla eða viðbótarmenntun í stjórnun, reynsla af stjórnun er æskileg
  • hafa haldgóða þekkingu á innviðum menntastofnana
  • hafa góða leiðtoga- og skipulagshæfileika
  • hafa hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt
  • hafa faglegan metnað, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar
  • hafa hæfni í mannlegum samskiptum og áhuga á skólamálum
  • hafa reynslu og hæfni í notkun upplýsingatækni, s.s. Office365.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert og stofnanasamningi MÍ. Ekki er um starf án staðsetningar að ræða.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfum¿ásamt stuttu kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. Sakarvottorð þarf að fylgja umsókn.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Einungis er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef Starfatorgs. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2023.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Áskilinn er réttur til að nýta umsóknina í 6 mánuði frá ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Heiðrún Tryggvadóttir, Skólameistari - heidrun@misa.is - 4504400 og 8498815

Smelltu hér til að sækja um starfið

Er hægt að bæta efnið á síðunni?