Leikskólinn Tjarnarbær á Suðureyri – Matráður

Leikskólinn Tjarnarbær á Suðureyri óskar eftir matráði í 100% ótímabundið starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Matráður eldar fyrir leik- og grunnskólann á Suðureyri, fer með matinn yfir í grunnskólann, skammtar hann þar og gengur frá eftir matinn. Viðkomandi þarf því að vera með bíl til umráða til að flytja matinn til og frá leikskólanum. Matráður hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld og bakstur, skipuleggur matseðla allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum. Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matseld og undirbúningur matmáls- og kaffitíma
  • Skipuleggur matseðil í samráði við leikskólastjóra og næringarfræðing
  • Innkaup á matvælum og hreinlætisvörum
  • Uppvask, frágangur og þrif í eldhúsi
  • Afleysingar vegna forfalla

Hæfnikröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af störfum í mötuneyti æskileg
  • Reynsla af störfum í leikskóla kostur
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að vinna á líflegum og skemmtilegum vinnustað
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Þolinmæði, umburðarlyndi og rík þjónustulund

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/VerkVest).

Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2023. Umsóknir skulu sendar til Svövu Ránar Valgeirsdóttur leikskólastjóra á netfangið svavava@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Svava Rán í síma 450-8290 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?