Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar - Fjölbreytt störf

Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar óskar eftir starfsfólki til starfa í tímabundin störf í tímavinnu frá 15. desember til 15. maí 2021. Almennt fara störfin fram seinnipart dags á fjögurra tíma vöktum virka daga en jafnan 7-8 tíma vöktum um helgar. Um er að ræða ólík störf og vinnutíma.

Umsóknarfrestur er til og með 6. desember 2021.

Starfsmenn í afgreiðslu og skíðaleigu

Starfsmaður í afgreiðslu sinnir almennum afgreiðslustörfum í skíðaskálanum, sölu aðgangskorta, afgreiðslu í skíðaleigu og sjoppu. Á helgum sjá viðkomandi auk þess um að elda hádegismat fyrir starfsmenn skíðasvæðis. Til viðbótar sjá starfsmenn afgreiðslu um ræstingu skíðaskálans í lok dags.

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og frumkvæði
  • Þekking á skíðabúnaði æskilegur
  • Reynsla af afgreiðslustörfum æskileg
  • Þekking í skyndihjálp kostur
  • Gild ökuréttindi
  • Vera orðinn 18 ára

 

Störf í lyftuvörslu

Lyftuvörður hefur umsjón með lyftu þegar hún er í notkun. Einnig tekur hann að sér önnur tilfallandi störf. Hann ber ábyrgð á að lyftan og brekkur sem að henni liggja séu í góðu ástandi, sér um rekstrardagbók lyftunnar, fylgist með því fólki er notar lyftuna hverju sinni og gengur frá henni við lokun.

Hæfniskröfur

  • Starfsreynsla á sviðinu æskileg
  • Haldgóð þekking í skyndihjálp
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og frumkvæði
  • Gild ökuréttindi
  • Vera orðinn 18 ára

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við FOSVest/VerkVest.

Allar nánari upplýsingar um störfin veitir Hermann Siegle Hreinsson forstöðumaður í síma 450-8400 eða á netfangið: hermannhr@isafjordur.is.

Umsóknum skal skilað til Hermanns á fyrrgreint netfang, þar sem tilgreint er hvaða starf sótt er um. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?