Grunnskólinn á Ísafirði - Stuðningsfulltrúar

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar tvö störf stuðningsfulltrúa. Annars vegar er um að ræða 100% ótímabundið starf frá 20. ágúst 2021 og hinsvegar tímabundið 75% starf frá 20. ágúst 2021 til 1. apríl 2021 með möguleika á framlengingu.

Starf stuðningsfulltrúa við Grunnskólann á Ísafirði tengist einkum þeim nemendum skólans sem hafa sérþarfir og/eða þurfa á sérkennslu eða á sérstakri aðstoð að halda. Einnig hópum þar sem sérstakrar aðstoðar er þörf. Oftast starfa stuðningsfulltrúar innan bekkja undir verkstjórn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu. Til viðbótar eru þeim falin ýmis skólatengd viðfangsefni, eins og gæsla o.þ.h.. Starfstími stuðningsfulltrúa er yfirleitt 9,5 mánuðir á ári.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoð og stuðningur við nemendur
  • Eftirfylgni kennsluáætlunar og/eða einstaklingsnámskrár
  • Vinna við ýmis skólatengd verkefni
  • Gæsla nemenda
  • Samstarf við kennara og deildarstjóra stoðþjónustu

Hæfniskröfur:

  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Gott frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Sveigjanleiki
  • Rík þolinmæði og umburðarlyndi
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við FOSVEST/VerkVest.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2021. Umsóknir skulu sendar til Sveinfríðar Olgu Veturliðadóttur skólastjóra, á netfangið sveinfridurve@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Sveinfríður í síma 450-8305 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?