Vísindaport - Fullveldisárið 1918

Að þessu sinni verður Vísindaportið í höndum tveggja sagnfræðinga, en gestir okkar eru þær Guðfinna Hreiðarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir. Munu þær fjalla um árið 1918, sem var á margan hátt merkisár í sögu íslensku þjóðarinnar. Í erindinu verður sagt frá ýmsum atburðum sem gerðust á árinu, innanlands og erlendis.

Guðfinna Hreiðarsdóttir starfar sem skjalavörður á skjala- og ljósmyndasafni Ísafjarðar. Jóna Símonía Bjarnadóttir er forstöðumaður Safnahússins á Ísafirði.

Vísindaportið fer fram í kaffistofu Háskólaseturs og hefst kl. 12:10. Allir velkomnir.