Vestfjarðastofa: Fundir um framtíðarsýn í fiskeldi

Fundir um framtíðarsýn í fiskeldi á Vestfjörðum verða haldnir á Patreksfirði 20. september og á Ísafirði 21. september. Á fundunum verður Samfélagssáttmáli og framtíðarsýn fyrirtækja í fiskeldi á Vestfjörðum til umfjöllunar auk þess sem þar verður vettvangur til að ræða þróun atvinnugreinarinnar frá öllum hliðum.

Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð undirrituðu samfélagssáttmála um fiskeldi 15. júlí 2021 sem unnið var að í samstarfi við Vestfjarðastofu. Tilgangur sáttmálans er að standa sameiginlega að hagsmungæslu í fiskeldi og tengdum atvinnugreinum á Vestfjörðum með að markmiði að efla atvinnu- og mannlíf með heildarhagsmuni Vestfjarða að leiðarljósi.

Fundirnir eru öllum opnir en vegna sóttvarnareglna er mikilvægt að skrá sig á fundina á heimasíðu Vestfjarðastofu www.vestfirdir.is.

20. september kl. 19:30 - Félagsheimili Patreksfjarðar Fundarstjóri – Ólafur Sveinn Jóhannesson
21. september kl. 19:30 - Edinborgarhúsinu Ísafirði Fundarstjóri – Héðinn Unnsteinsson

Dagskrá 

  • Ávarp
  • Kynning á samfélagssáttmála um fiskeldi
  • Kynning á skýrslu KPMG um greiningu á áhrifum fiskeldis á Vestfjörðum
  • Erindi frá Hafrannsóknarstofnun
  • Erindi frá Matvælastofnun
  • Erindi um stöðu fiskeldis á Vestfjörðum
  • Kynningar frá fyrirtækjum tengdum fiskeldi
  • Pallborðsumræður