Lögheimilisskráning vegna forsetakosninga

Tilkynning frá Þjóðskrá Íslands vegna forsetakosninga 2020:

Laugardaginn 6. júní 2020 er viðmiðunardagur kjörskrár vegna forsetakosninga sem hafa verið auglýstar þann 27. júní nk.

Kosningarétt við forsetakonsingar þann 27. júní nk. eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili hér á landi. Íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri og flutt hafa erlendis eiga kosningarétt í 8 ár frá flutningnum. Eftir þann tíma þurfa þessir aðilar að sækja um að vera teknir á kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands. Ef viðkomandi er ekki með gilda umsókn, 8 ár eða meira eru liðin frá flutningi og engin umsókn barst Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2019 er viðkomandi ekki á kjörskrá. Sjá nánari upplýsingar á vef stjórnarráðsins.

Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi, þ.e. þremur vikum fyrir kjördag, þann 6. júní 2020. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.

Stefnt er að því að opnað verði fyrir uppflettingu í kjörskrárstofni á „Hvar á ég að kjósa“ þriðjudaginn 9. júní á vef stjórnarráðsins á þessari slóð: www.stjornarradid.is/verkefni/kosningar/forsetakosningar-2020/