Ísafjörður: Lokað fyrir vatnið inni í firði miðvikudaginn 30. nóvember

Vegna tengingarvinnu verður lokað fyrir vatnið á eftirfarandi svæðum á morgun, miðvikudaginn 30. nóvember, klukkan 11-15:

Holtahverfi
Tunguhverfi
Seljaland
Múlaland
Skógarbraut 1-2
Funi
Ísafjarðarflugvöllur

SMS um vatnslokun hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.