Ísafjarðarbær keppir til úrslita í Útsvari í kvöld

Ísafjarðarbær keppir í fyrsta sinn til úrslita í Útsvari Ríkissjónvarpsins klukkan 20.15. Mótherjinn er Ölfus og eins og fram kemur í útskýringum með þessari mynd af facebook síðu stuðningshóps þeirra Gylfa, Tinnu og Greips verða þau með gulan bakgrunn í kvöld en ekki bláan eins og hingað til.
Við óskum liðinu alls hins besta og vitum að þau munu standa sig með sóma. Áfram Ísafjarðarbær!