Ísafjarðarbær hvetur til þátttöku í Lífshlaupinu

Ísafjarðarbær hvetur íbúa sveitarfélagsins til þátttöku í Lífshlaupinu sem hefst þann 3. febrúar. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega. Öll hreyfing telur í Lífshlaupinu og þar er t.d. hægt að skrá snjómokstur, verkefni sem margir íbúar hafa líklega fengist við undanfarna daga.

Við erum vonandi komin á lokasprettinn í baráttu okkar við COVID-19 en það er mikilvægt að láta ekki deigan síga. Í öllum þeim höftum og verkefnum sem vírusinn hefur fært okkur má ekki gleyma að huga vel að bæði andlegri og líkamlegri heilsu. Það er meðal annars hægt að gera með því að hreyfa sig reglulega.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • Vinnustaðakeppni frá 3. febrúar–23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri
  • Framhaldsskólakeppni frá 3. febrúar–16. febrúar, fyrir 16 ára og eldri
  • Grunnskólakeppni frá 3. febrúar–16. febrúar, fyrir 15 ára og yngri
  • Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Skráning er hafin á lifshlaupid.is/innskraning