Hraðaminnkandi aðgerðir á Aðalgötu

Nú er verið að gera tilraun með hraðaminnkandi aðgerðir á Aðalgötu á Suðureyri. Settar hafa verið upp þrengingar eins og sjást á meðfylgjandi mynd sem Kristján Andri Guðjónsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, tók í dag.