Fasteignagjöld 2022

Búið er að birta álagningarseðla fasteignagjalda 2022 á minarsidur.island.is og hafa greiðsluseðlar verið sendir út í netbanka.

Allar upplýsingar um álagningu fasteignagjalda og greiðslufyrirkomulag má finna í samantekt um fasteignagjöld.

Vakin er athygli á því að á árinu 2022 er gjalddögum fjölgað úr 10 í 12 og verða fasteignagjöld því innheimt mánaðarlega framvegis, fyrir utan fasteignagjöld sem eru 45.000,- eða lægri, þau eru innheimt með einum gjalddaga 15. apríl.

Nánari upplýsingar og aðstoð við að:

  • skrá sig í boðgreiðslu fasteignagjalda
  • óska eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum
  • óska eftir að fá senda álagningarseðla
  • senda inn erindi vegna fasteignagjalda

má fá með því að senda fyrirspurn á innheimta@isafjordur.is eða í síma 450 8000.

Umsóknir um afslátt af fasteignagjöldum fyrir elli- og örorkulífeyrisþega fara í gegnum velferðarsvið en hægt er að sækja um rafrænt í þjónustugátt.

Fasteignamat er gefið út árlega af Þjóðskrá Íslands og hækkaði um 19% frá árinu 2021. Ef fasteignamat íbúðarhúsnæðis er skoðað eftir byggðakjörnum þá hækkaði fasteignamatið mest í sérbýli í eldri byggð á Ísafirði, eða 32%.

Matssvæði
Íbúðarhúsnæðis

% breyting fyrir sérbýli

% breyting fyrir fjölbýli

Ísafjörður: Eldri byggð

32,1,0%

22,6%

Ísafjörður: Nýrri byggð

16%

37%

Hnífsdalur

43%

1%

Suðureyri

11%

0,5%

Flateyri

18%

0,9%

Þingeyri

7%

0,9%

Hornstrandir

0,0%

0,0%

Fasteignagjöld sveitarfélagsins eru lögð árlega á flestar fasteignir í sveitarfélaginu sem metnar eru fasteignamati samkvæmt fasteignaskrá. Á árinu 2022 nema fasteignagjöld 757 m.kr. og hækka samanlagt um 7% milli ára.

Fasteignaskattur er einn liður fasteignagjalda og er jafnframt þriðji stærsti tekjustofn sveitarfélagsins. Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði var lækkaður á árinu 2021 úr 0,625% í 0,56% og er óbreyttur á árinu 2022. Lóðarleiga á íbúðarhúsnæði var lækkuð á árinu 2022 úr 1,8% í 1,5% og vatnsgjald á íbúðarhúsnæði var lækkað úr 0,1% í 0,02% og holræsagjald á íbúðarhúsnæði var lækkað úr 0,2% í 0,15%. Er með þessu komið til móts við þá hækkun sem annars hefði orðið vegna hækkunar fasteignamats.

Fasteignaskattur á árinu 2022 hækkar um 16,4% frá fyrra ári eða úr 375 m.kr í 436 m.kr. Lóðarleiga hækkar samanlagt um 5,8% á meðan holræsagjöld lækka um 4,4% sorpgjöld hækka um 10,5% og vatnsgjöld lækka um 33,4%.

Kærufrestur er til 28. febrúar 2022.