Brunngötu lokað í dag

Vegna lagnafóðrunar þarf að loka Brunngötu á Ísafirði í dag milli klukkan 10 og 22. Þá má búast við að loka þurfi götunni aftur í einhvern tíma á helginni vegna malbikunar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.