Námskeið fyrir nýja starfsmenn Ísafjarðarbæjar - 4. október 2018

Námskeið fyrir nýja starfsmenn verður haldið fimmtudaginn 4. október í fundarsal á 4. hæð stjórnsýsluhússins.  Starfsmenn geta valið eftir hentugleika hvort þeir mæti annað hvort milli kl. 08.30 til 11.00 eða milli 13.30 og 16.00.

Á námskeiðinu verður farið yfir ýmsa þætti í starfsemi Ísafjarðarbæjar, hlutverk starfsmanna og skyldur, skipurit, starfsmannastefnuna, samskipti á vinnustað, Vinnustund o.fl.  

Allir nýir starfsmenn skrá sig til þátttöku með því að senda póst á baldurjo@isafjordur.is.  

Með von um góða þátttöku,

Baldur Ingi Jónasson,

mannauðsstjóri

Er hægt að bæta efnið á síðunni?