Velferðarsvið – Starfsmaður í stuðningsþjónustu

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf í stuðningsþjónustu á Ísafirði. Um er að ræða 35% starf á dagvinnutíma. Æskilegast er að starfsmaður geti hafið störf í lok apríl. Stuðningsþjónustan hefur það að markmiði að efla einstaklinga til sjálfsbjargar og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin heimili, við sem eðlilegastar aðstæður.

Helstu verkefni

  • Þrif á heimilum þjónustuþega skv. vinnuleiðbeiningum
  • Félagslegur stuðningur
  • Ýmis aðstoð við heimilisstörf skv. vinnuleiðbeiningum
  • Samskipti við þjónustuþega
  • Aðstoð við innkaup/erindarekstur

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og stundvísi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (FosVest/VerkVest).

Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2022. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið johannakr@isafjordur.is .

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Maggý Kristjánsdóttir, forstöðumaður stuðningsþjónustu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?