Leikskólinn Sólborg Ísafirði – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Leikskólinn Sólborg á Ísafirði auglýsir laus til umsóknar tvö tímabundin 100% störf leikskólakennara eða starfsmanns í leikskóla fram að sumarleyfi, með möguleika á áframhaldandi vinnu. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eftir páska eða eftir nánara samkomulagi. Einnig vantar starfsmann í 100% sumarstarf frá 1. júní.

Sólborg er fimm deilda leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en í skólanum eru um 100 börn. Ein deildin er fimm ára deild sem staðsett er í húsnæði Tónlistarskóla Ísafjarðar. Um er að ræða mjög skemmtileg og gefandi störf í lifandi starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2022. Umsóknir skulu sendar til Jensínu K. Jensdóttur, aðstoðarleikskólastjóra á netfangið jennyje@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og leyfisbréf. 

Nánari upplýsingar veitir Jensína, í síma 450-8285 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?