Leikskólinn Grænigarður á Flateyri – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Laust er til umsóknar starf leikskólakennara við leikskólann Grænagarð á Flateyri. Um er að ræða 100% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 6. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og verður þá um tímabundið starf að ræða til eins árs með möguleika á framlengingu.

Leikskólinn Grænigarður er staðsettur í fallegu umhverfi þar sem stutt er í allt, fjöruna, fjöllin, hvítu ströndina og sveitasæluna. Grænigarður leggur áherslu á jákvætt starfsumhverfi, gleði og kærleika. Áhersla er einnig lögð á gott samstarf við foreldra, hreyfingu, útiveru og frjálsan leik.

Helstu verkefni

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn leikskólastjóra.

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2024. Umsóknir skulu sendar til Hildar Sólmundsdóttur, leikskólastjóra, á hildursol@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi/prófskírteinum.

Nánari upplýsingar veitir Hildur í síma 450-8260 eða í gegnum fyrrgreint tölvupóstfang. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?