Leikskólinn Grænigarður á Flateyri – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Laust er til umsóknar starf leikskólakennara við leikskólann Grænagarð á Flateyri. Um er að ræða 100% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf frá og með 10. ágúst 2022. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari.

Leikskólinn Grænigarður er staðsettur í fallegu umhverfi þar sem stutt er í allt, fjöruna, fjöllin, hvítu ströndina og sveitasæluna. Grænigarður leggur áherslu á jákvætt starfsumhverfi, gleði og kærleika. Áhersla er einnig lögð á gott samstarf við foreldra, hreyfingu, útiveru og frjálsan leik.

Helstu verkefni

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn leikskólastjóra.

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2022. Umsóknir skulu sendar til Sigríðar Önnu Emilsdóttur leikskólastjóra á netfangið sigridure@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður í síma 450-8260 eða í gegnum tölvupóst. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?