Grunnskólinn á Ísafirði – Þroskaþjálfi

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar 100% starf þroskaþjálfa við skólann frá 1. ágúst 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 380 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og verið þátttakandi í vinaliðaverkefninu.

Leitað er að drífandi og áhugasömum einstaklingi sem býr yfir miklum skipulagshæfileikum og sýnir frumkvæði og metnað í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í hópi, ásamt því að vera sjálfstæður í verkefnum þegar þörf krefur. Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Samstarfsaðili kennara og annarra starfsmanna
  • Þjálfun og umönnun nemenda með fötlun
  • Gerð einstaklingsáætlana
  • Endurmat
  • Ráðgjöf og leiðbeiningar til starfsfólks og foreldra

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf þroskaþjálfa
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
  • Skipulagsfærni og nákvæmni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Samviskusemi, stundvísi og sveigjanleiki
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

Umsóknir skulu sendar til Sveinfríðar Olgu Veturliðadóttir, skólastjóra, á netfangið sveinfridurve@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, prófskírteini og afrit af leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2022.

Nánari upplýsingar veitir Sveinfríður í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?