Grunnskólinn á Ísafirði - Kennarar

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar frá hausti 2022. Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 380 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og verið þátttakandi í vinaliðaverkefninu. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins en á Ísafirði er fjölbreytt samfélag þar sem hreyfing og menning skipa stóran sess.

Grunnskólakennarar:

  • Umsjónarkennarar á yngsta-, mið- og unglingastigi 100%. Meðal kennslugreina á unglingastigi er íslenska, stærðfræði og náttúrufræði.
  • Umsjónarkennari á miðstigi 100% (tímabundin ráðning til eins árs).
  • Sérkennari 60-70% (tímabundin ráðning til eins árs).

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum og skipulagsfærni
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um góða íslenskunnáttu í ræðu og riti

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skal skilað til Sveinfríðar Olgu Veturliðadóttur skólastjóra á netfangið sveinfridurve@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og leyfisbréf. Umsóknarfrestur um störfin er til og með 21. apríl 2022.

Allar nánari upplýsingar veitir Sveinfríður Olga í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?