Grunnskóli Önundarfjarðar – Grunnskólakennari

Laust er til umsóknar 100% starf kennara við fjölbreytta kennslu í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi sem er tilbúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst 2022 eða eftir nánara samkomulagi.

Grunnskóli Önundarfjarðar er notalegur en jafnframt líflegur skóli með undir 20 nemendur. Samkennsla fer fram á hverju skólastigi fyrir sig en einnig þvert á öll stig þar sem það hentar.

Einkunnarorð skólans eru virðing, metnaður, gleði og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
  • Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni.
  • Fylgist með námi, þroska og félagslegu gengi nemenda sinna.
  • Hefur forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað.
  • Sér um vitnisburð og skýrslugerð varðandi nemendur.
  • Fylgist með skólasókn nemenda og skráir hana samkvæmt fyrirmælum.
  • Er í samstarfi við foreldra og samfélag eftir því sem viðeigandi er.
  • Hefur siðareglur kennara að leiðarljósi.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum.
  • Brennandi áhugi á starfi með börnum og ungmennum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagsfærni.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Geta til að takast á við nýjungar og fjölbreytta kennslu og kennsluhætti.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skal skilað til Kristbjargar Sunnu Reynisdóttur skólastjóra á netfangið Kristbjorgre@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2022. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Kristbjörg í síma 450-8360 eða í gegnum tölvupóst. Einnig má finna upplýsingar um skólann á heimasíðu hans http://gron.isafjordur.is/

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?