Byggðasafn Vestfjarða - Sumarstarf

Byggðasafn Vestfjarða auglýsir sumarstarf laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf í 3 mánuði frá byrjun maí fram til byrjun ágúst eða eftir nánara samkomulagi.

Í starfinu felst pökkun og skráning gripa, tiltekt í geymslu auk forvörslu og afleysingu í yfirsetu á safninu. Viðkomandi þarf að hafa lokið framhaldsskóla og hafa áhuga fyrir safnastarfi.

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknir skulu berast á byggdasafn@isafjordur.is og með umsókn skal fylgja ferilskrá. Frekari upplýsingar veitir Jóna Símonía Bjarnadóttir, forstöðumaður í síma 456-3291 og jona@isafjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2022.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?