Opnað fyrir umsóknir í Flateyrarsjóð 2024

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í svo kallaðan Flateyrarsjóð, þróunarsjóð sem styrkir frumkvæðis- og samfélagsverkefni á Flateyri.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna í tengslum við samfélagsverkefni sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Ísafjarðarbær og Vestfjarðastofa standa að.

Á árinu 2024 er gert ráð fyrir 20 milljónum króna til úthlutunar. Mat verkefna tekur mið af íbúasamráði í tengslum við samfélagsverkefni á Flateyri og markmið Sóknaráætlunar Vestfjarða. Þær umsóknir sem berast í sjóðinn verða metnar af verkefnisstjórn byggðarlagsins sem skipuð er fulltrúum frá Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Hverfaráði Flateyrar.

Umsóknarfrestur er til 7. janúar 2024 kl. 16.00.

Öll sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu á Flateyri eru hvattir til að sækja um. Athugið að vönduð umsókn eykur líkur á úthlutun úr Þróunarsjóði.
Umsækjendum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins áður en hafist er handa við að fylla út umsókn.

Styrkhæf verkefni eru:

  • Rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu.
  • Stofnfjárfesting í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði.
  • Samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.

Umsóknir eru sendar inn í gegnum umsóknarvef.

Verklag um umsýslu fjármuna Þróunarsjóðs Flateyrar 2020-2023.