Naustahvilft: Annað námskeið um helgina

Vinna við gerð náttúrustígs upp í Naustahvilft heldur áfram um helgina, áfram undir leiðsögn Kjartans Bollasonar.

Ísafjarðarbær kallar á ný eftir þátttakendum á námskeiðið til að vinna með Kjartani að stígagerðinni dagana 7. og 8. júní.

Náttúrustígar eru að mestu gerðir með handafli, þurfa að falla að landslaginu og notast við staðbundinn efnivið eins og hægt er.

Upplegg námskeiðsins er með eftirfarandi hætti:

Föstudagur 7. júní 13:00-17:00

  • Þátttakendur fá stutta kynningu á verklagi og vinnusvæði
  • Verkleg kennsla í áhættumati og notkun verkfæra
  • Verkleg kennsla í verklagi, s.s. grjótvinnu
  • Hópavinna við stígagerð

Laugardagur 8. júní 9:00-17:00

  • Hver hópur fer á sitt vinnusvæði og heldur áfram með verkefni gærdagsins
  • Hádegishlé, matur í boði Ísafjarðarbæjar
  • Mögulega skipt um verksvæði eða rýnt í það sem hefur verið gert og næstu skref metin
  • Hópavinna við stígagerð

Dagskráin gæti eitthvað riðlast ef veður setur strik í reikninginn.

Stofnaður hefur verið hópur á Facebook þar sem áhugasamir geta fylgst með og skráð sig á vinnutarnir, sem verða fleiri í sumar. 

Skráning fer fram með því að senda póst á Kjartan á netfangið muirkb@gmail.com eða með því að hringja í síma 868 8715.