Grunnskólinn á Ísafirði hlýtur Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2024

Handhafar Íslensku lýðheilsuverðlaunanna 2024, þau Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur og …
Handhafar Íslensku lýðheilsuverðlaunanna 2024, þau Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur og Kristján Arnar Ingason, skólastjóri Grunnskólans á Ísafirði, ásamt forseta. Ljósmynd/ Anton Brink. www.forseti.is

Grunnskólinn á Ísafirði hlýtur Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2024 í flokki starfsheilda fyrir fjallgönguverkefni skólans.

Þann 25. apríl 2024 afhenti forseti Íslands Íslensku lýðheilsuverðlaunin í annað sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin eru veitt í tveimur flokkum fyrir mikilsvert framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi. Í flokki starfsheilda varð Grunnskólinn á Ísafirði fyrir valinu fyrir fjallgönguverkefni sitt, sem hefur verið í gangi í skólanum frá árinu 1996. Kristján Arnar Ingason, skólastjóri GÍ, tók við verðlaununum, sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra afhenti. Í fréttatilkynningu frá skólanum segir meðal annars:

Við erum afar stolt af þessum verðlaunum fyrir hönd starfsmanna, nemenda og foreldra Grunnskólans á Ísafirði, sem margir hverjir hafa verið duglegir að slást í för með okkur í fjallgöngurnar og skipulagt með okkur ferðir 10. bekkjar.

Á hverju hausti fara allir árgangar GÍ í fjallgöngur. Í upphafi skólagöngunnar er byrjað á að fara upp í Stórurð, en svo smám saman verður gangan erfiðari, en hver árgangur fær úthlutað sinni gönguleið. Þegar grunnskólagöngunni lýkur hafa því allir nemendur kynnst helstu fjallgönguleiðum hér í kring svo sem upp í Naustahvilft, á Hnífa, Sandfell og Kistufell svo fátt eitt sé nefnt. Nemendur 10. bekkjar hafa siglt yfir í Jökulfirði og gengið þar, gist í tjöldum yfir nótt og komið til baka daginn eftir.

Markmiðið með fjallgöngunum er meðal annars að kynna nemendum fyrir náttúrunni og nærumhverfi sínu, en einnig eru þær mikilvægar til að efla hreyfifærni, samstöðu og félagsþroska nemenda, seiglu og virðingu fyrir umhverfinu.

Til hamingju Grunnskólinn á Ísafirði!