Umhyggja, félag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, stendur fyrir Umhyggjudeginum sem haldinn er víðs vegar um land laugardaginn 26. ágúst. Í tilefni dagsins verður frítt í sund í sundlaugum Ísafjarðarbæjar.
Frá og með 22. ágúst tekur vetraropnun gildi í sundlaugum Ísafjarðarbæjar á Flateyri, Ísafirði og Suðureyri. Á Þingeyri tekur vetraropnun gildi frá og með 1. september.