Óskað eftir verktaka í heimsendingu á mat

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar óskar eftir að ráða verktaka til þess að keyra út mat í heimsendingu allar helgar (laugardaga og sunnudaga), ásamt rauðum dögum.

Keyrslan fer fram á milli 11:00 og 12.00 og er keyrt út á Ísafirði og Hnífsdal. Fjöldi heimila sem fá matarsendingu er alla jafna frá minnst fjórum upp í tólf.

Verktaki útvegar bíl til verksins. Bíllinn þarf ekki að vera sérútbúinn en mikilvægt að hann sé með rúmgott skott.

Umsóknir berist til Hörpu Stefánsdóttur, harpast@isafjordur.is.