Aðalskipulag: Vinnslutillaga vegna svæðis Í9 í Dagverðardal
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar birtir til kynningar vinnslutillögu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna breytingar á landnotkun á svæði Í9 í Dagverðardal í Skutulsfirði.
Suðureyri: Aftur tengivinna á vatnslögn um helgina
Áfram verður unnið að tengingu vatnslagnar í Staðardal um helgina og því eru íbúar á Suðureyri aftur beðnir um að spara vatnsnotkun á morgun, laugardaginn 30. september, kl. 8-17, þar sem lokað verður á streymi í vatnstank á meðan.
Suðureyri: Tengivinna á vatnslögn í Staðardal um helgina
Íbúar á Suðureyri eru beðnir um að spara vatnsnotkun á morgun, laugardaginn 23. september, kl. 8-17, þar sem unnið verður að tengivinnu á vatnslögn í Staðardal og því lokað á streymi í vatnstank á meðan.
Sundlaugin verður lokuð af þessum sökum.