Vinnuskólinn

Vinnuskólinn

Ísafjarðarbær starfrækir vinnuskóla í allt að sex vikur á sumrin. Skólinn er fyrir unglinga í 8.-10. bekk, 14-16 ára.

Vinnuskólinn er fyrir 14-16 ára unglinga (8.-10. bekk grunnskóla) og er starfræktur í allt að sex vikur á sumrin.

Verkefni vinnuskólans eru fjölmörg. Nemendur vinnuskólans geta valið á milli ólíkra fyrirtækja, þar mæta þau og sinna þeirri vinnu sem fram fer í tilteknu fyrirtæki, einnig er hægt að velja um að aðstoða á leikjanámskeiðum og ýmsum íþróttaæfingum, á golfvallarsvæði, siglingarnámskeiði eða í leikskóla.

Reynt er að starfrækja skólann í öllum byggðakjörnum eins og hægt er og að haga störfum þannig að flest ungmenni geti unnið nálægt heimili sínu.

Starfstímabil og kjör

Starfstímabil vinnuskólans sumarið 2026 er frá 8. júní til og með 17. júlí.

  • 8. bekkur fær að hámarki vinnu í 4 vikur
  • 9. bekkur fær að hámarki vinnu í 5 vikur
  • 10. bekkur fær að hámarki vinnu í 6 vikur

Vinnutími er mánudag til föstudags milli 08:00 til 14:00.  *Ekki er unnið á rauðum dögum.

Tímakaup:
8. bekkur: 1.080 kr.
9. bekkur: 1.440 kr.
10. bekkur: 1.800 kr.

Skráning

Við skráningu þarf nemandi að eiga bankareikning sem stofnaður er á kennitölu hans.

Árið sem unglingur nær 16 ára aldri verður skattskylda eins og hjá fullorðnum. Ráðstöfun persónuafsláttar til vinnuveitanda er á ábyrgð unglingsins. Spurt er um ráðstöfun í umsókn og er sú útfylling gild þar til önnur ráðstöfun berst til launadeildar Ísafjarðarbæjar.

Hér er hlekkur á rafrænt umsóknarform -  Sækja um

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026.

Ef einhver vandræði eru með rafræna umsókn, má fylla út umsóknareyðublað og senda á Dagnýju Finnbjörnsdóttur.

Allar frekari upplýsingar veitir Dagný Finnbjörnsdóttir