Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði

Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði starfar í umboði bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Nefndin er verkefnabundin nefnd og hefur störf við stofnun, 6. maí 2025, og lýkur störfum við lokaúttekt á byggingu slökkvistöðvar.

Meginhlutverk nefndar um byggingu slökkvistöðvar er eftirfarandi:

  • Setja upp tímasetta verkáætlun vegna hönnunar og byggingar slökkvistöðvar.
  • Yfirfara þarfagreiningu nýrrar slökkvistöðvar, m.t.t. þarfa sveitarfélagsins og lögbundinnar aðstöðu slökkviliðs.
  • Yfirfara tillögur sérfræðinga að byggingu , m.t.t. hugmynda að hönnun húss og skipulagi í kringum áætlaðan byggingarstað.
  • Gera tillögu um hönnun, byggingu, útboð og áfangaskiptingu verksins ásamt kostnaðaráætlun.
  • Vera embættismönnum og bæjarstjórn til ráðgjafar varðandi allt það sem snýr að byggingu slökkvistöðvar.
  • Nefndin fylgir verkefninu eftir á byggingartíma og skal haga ákvörðunum og tillögum til bæjarstjórnar varðandi einstaka verkþætti og byggingu hússins í heild með hliðsjón af fjárhagsáætlunum bæjarstjórnar hverju sinni.

Erindisbréf

Fundargerðir

Aðalfulltrúar:  

 

     Sigurður A. Jónsson

 

     Sveinn H. Þorbjörnsson

 

     Sveinn I. Guðbjörnsson

 

     Sigríður J. Brynleifsdóttir

bæjarstjóri

     Axel R. Överby

sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs

Varafulltrúar:

 

     Hermann G. Hermannsson

 

     Þorkell L. Þorkelsson

 

     Steinunn G. Einarsdóttir

 

     Bryndís Jónsdóttir

sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs

     Erla M. Gunnarsdóttir

skipulagsfulltrúi

Starfsmaður nefndarinnar er Eyþór Guðmundsson, verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði.
Netfang: eythorgu@isafjordur.is