Flateyri: Hreinsun á oddanum í október

Ísafjarðarbær mun standa fyrir hreinsun á lóðum í eigu bæjarins á oddanum á Flateyri í október.
Eigendur veiðarfæra, gáma, drasls og annarra lausamuna þurfa að fjarlæga þá fyrir 15. október.
Lausamunir sem verða eftir á svæðinu þegar fresturinn rennur út verða fjarlægðir og þeim fargað.

Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri á Flateyri, Hrönn Garðarsdóttir.

Athugið að fréttin hefur verið uppfærð með framlengdum tímafresti.