Upplýsingar fyrir nýja íbúa

Ísafjarðarbær tekur fagnandi á móti nýjum íbúum. Í sveitarfélaginu er líflegt og fjölskylduvænt samfélag umvafið stórbrotinni náttúru.
Hér eru helstu upplýsingar fyrir nýja íbúa í Ísafjarðarbæ eða þau sem hafa hug á að fltyja í sveitarfélagið.
Fjölskyldan
Leikskólar
Sveitarfélagið starfrækir leikskóla á Flateyri, Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri. Hægt er að sækja um leikskólapláss í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.
Grunnskólar
Grunnskólar bæjarins eru fjórir í jafnmörgum byggðarkjörnum; á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Í öllum skólum er boðið upp á hafragraut á morgnana og heitan mat í hádeginu, án endurgjalds. Lengd viðvera er í boði fyrir yngstu börnin. Nýskráning í grunnskóla er í gegnum þjónustugátt.
Tónlistar- og listaskólar
Tveir öflugir listaskólar eru starfandi í Ísafjarðarbæ, Tónlistarskóli Ísafjarðar og Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar.
Í TÍ er kennt á öll helstu hljóðfæri. Höfuðstöðvar og tónleikasalur eru við Austurveg á Ísafirði, en útibú eru á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Í LRÓ er föst kennsla í tónlist og listdansi, en einnig eru haldin námskeið í ýmsum listgreinum.
Lífið í Ísafjarðarbæ
lifid.isafjordur.is er nokkurs konar rafræn íbúahandbók um allt sem við kemur lífinu eftir vinnu og skóla. Þar eru á einum stað upplýsingar um þær tómstundir, félagsstarf, menningu og útivist sem í boði er í sveitarfélaginu.
Hvað er á döfinni?
Viðburðir sem fara fram á svæðinu eru skráðir á viðburðadagatal. Öllum er frjálst að senda inn sína viðburði á dagatalið.
Bókasafn
Bókasafn Ísafjarðar er í Safnahúsinu Eyrartúni (gamla sjúkrahúsinu) sem hýsir einnig Skjalasafnið Ísafirði, Ljósmyndasafnið Ísafirði og Listasafn Ísafjarðar.
Íþróttir
Í Ísafjarðarbæ eru fimm íþróttahús, fjórar sundlaugar, sjö sparkvellir og tvö skíðasvæði.
Flest íþróttafélög á svæðinu starfa undir merkjum Héraðssambands Vestfjarða, HSV. Allar nánari upplýsingar um íþróttastarf og æfingar má finna á vef sambandsins, www.hsv.is og á lifid.isafjordur.is.
Styrkir til tómstundastarfs
Ekki er boðið upp á hefðbundna frístundastyrki hjá Ísafjarðarbæ, þess í stað starfrækir sveitarfélagið íþróttaskóla fyrir börn í 1.-4. bekk þar sem þeim er boðið upp á fjölbreytt starf í samfellu við skóladag nemenda.
Sérstakir akstursstyrkir eru í boði fyrir fjölskyldur barna og unglinga í Dýrafirði, Súgandafirði og Önundarfirði sem þurfa að fara langan veg til að stunda viðurkennt íþrótta- eða tómstundastarf.
Lífið í Ísafjarðarbæ
lifid.isafjordur.is er rafræn íbúahandbók um allt sem við kemur lífinu eftir vinnu og skóla. Þar eru á einum stað upplýsingar um þær tómstundir, félagsstarf, menningu og útivist sem í boði er í sveitarfélaginu.
Þjónustugáttin
Þjónustugátt Ísafjarðarbæjar er rafrænt kerfi fyrir umsóknir og önnur mál íbúa innan sveitarfélagsins. Þar eru umsóknir og skráning í skóla, umsóknir um félagslega þjónustu, leyfi til dýrahalds og fleira. Þar má einnig finna umsóknir um menningar- og akstursstyrki.
Í gáttinni er einnig hægt að skoða reikninga frá sveitarfélaginu og sjá stöðu opinna mála.
Skráning inn á þjónustugáttina er með rafrænum skilríkjum.
Flutningur á lögheimili
Flutningur á lögheimili er tilkynntur rafrænt á vef Þjóðskrár og skal það gert innan sjö daga eftir flutninga.
Ef flutt er til Íslands frá útlöndum þarf að mæta með löggild skilríki, í eigin persónu til Þjóðskrár í Reykjavík eða hjá næsta lögreglustjóra. Í Ísafjarðarbæ er þetta gert hjá afgreiðslu lögregluembættisins á Vestfjörðum, Hafnarstræti 1, Ísafirði.
Upplýsingagjöf til íbúa
Undir flokknum „íbúar“ hér á isafjordur.is er urmull af gagnlegum upplýsingum um þjónustu sem stendur íbúum til boða, svo sem:
Undir flokknum „stjórnsýsla“ má meðal annars finna gjaldskrár sveitarfélagsins, yfirlit yfir reglur og samþykktir og útlistun á stjórnkerfi. Á forsíðunni eru einnig upplýsingar um laus störf í sveitarfélaginu.
Tilkynningar og fréttir frá sveitarfélaginu eru settar inn á fréttasíðu hér á vefnum og á Facebooksíðu Ísafjarðarbæjar.
Þegar koma þarf út skilaboðum til íbúa á afmörkuðu svæði með hraði, t.d. þegar taka þarf vatn af hverfum eða íbúar þurfa að færa bíla vegna snjóhreinsunar er notast við SMS-kerfi frá símaskrá 1819.is. Það er því mikilvægt að íbúar séu skráðir þar á rétt heimilisfang svo þeir fái skilaboðin.
Hvað er á döfinni?
Viðburðir sem fara fram á svæðinu eru skráðir á viðburðadagatal. Öllum er frjálst að senda inn sína viðburði á dagatalið.
Aðrar gagnlegar upplýsingar
Eins og annars staðar leikur Facebook nokkuð stórt hlutverk í að tengja fólk saman og eru margir áhugaverðir hópar í boði á vegum einstaklinga í bænum, t.d. Ísafjarðarmarkaðurinn sem er eins konar rafrænn flóamarkaður, Lánum og fáum lánað - Ísafjörður og nágrenni og Auglýsingatafla Ísafjarðar og nágrennis.