Suðureyri: Aftur tengivinna á vatnslögn um helgina

Áfram verður unnið að tengingu vatnslagnar í Staðardal um helgina og því eru íbúar á Suðureyri aftur beðnir um að spara vatnsnotkun á morgun, laugardaginn 30. september, kl. 8-17, þar sem lokað verður á streymi í vatnstank á meðan.

Þrátt fyrir þetta verður sundlaugin opin.