Dalbæjarleikar
Dalbæjarleikar 2026
Um verslunarmannahelgina verður skemmtidagskrá með leikjum og þrautum fyrir alla fjölskylduna í og við Dalbæ á Snæfjallaströnd. Boðið verður upp á kaffihlaðborð og tónleika þar sem fram koma m.a. Kvæðakórinn, Súrillur og Dókur, Unnur Malín, Kraftgalli og Mítlarnir.
Laugardagur 1. ágúst
12-13 Súpa í Dalbæ
13-14 Leikir og þrautir á útisvæði
14-16:30 Kaffihlaðborð
18-20 Sameiginlegt grill – allir koma með eigin mat og drykk
20-23 Fjölskylduskemmtun í Dalbæ. Ókeypis rabarabaragrautur, en frjáls framlög.
Kvæðakórinn
Unnur Malín
Kraftgalli
Súrillur og Dókur
Mítlarnir
Sunnudagur 2. ágúst
13-14 Gönguferð með leiðsögn um sögustaði í nágrenninu
14-16:30 Kaffihlaðborð
14-18 Skemmtidagskrá í Dalbæ
Óvæntar uppákomur.
21 Hlöðupartý, Karaókí
Ókeypis er inn á viðburði en súpa með brauði kostar kr. 3500, kaffihlaðborð kr. 3500,
kr. 2000 f. börn og ungmenni 6-13 ára.
Öll innkoma fer í viðhald á Dalbæ.