Act alone Suðureyri

Skrá nýjan viðburð


Elsta leiklistarhátíð landsins Act alone verður haldin hátíðleg 22. árið í röð 6. - 8. ágúst í hinu einstaka sjávarþorpi Suðureyri. Þorpi sem umlykur hátíðina, listafólkið og gestina. 22 einstakir listviðburðir; leiksýningar, tónleikar, sögustundir og allskonar stundir. Að vanda verður boðið uppá einstaklega vandaða barna- og fjölskyldudagskrá. Fjöldi innlendra viðburða og tveir erlendir gestaviðburðir sem koma frá Pólandi og Noregi. Takið nú dagana frá og hlökkum til að hitta ykkur á Actinu í ágúst á Suðureyri.
 
Þann 6. júní kynnum við dagskrá ársins sem verður einstaklega einstök þökk sé okkar góða baklandi í formi sjóða og fyrirtækja. Að ógleymdum listabænum Ísafjarðarbæ. Dagskrá Act alone má nálgast á heimasíðu okkar www.actalone.net
Það er ókeypis á Act alone einsog verið hefur frá upphafi. En þeir sem vilja leggja okkur lið og gjöra Actið þannig að enn betri hátíð er bent á reikning og kennitölu Actsins.
Reikn.: 0156 - 26 - 82. Kennitala: 580608 - 0510. Hvert framlag er einstakt.
 
Aðalstyrktaraðilar: Uppbyggingasjóður Vestfjarða & Ísafjarðarbær.
Bakhjarlar: Klofningur Suðureyri, Barnamenningarsjóður, Íslandssaga Suðureyri og Fisherman Suðureyri.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?