Sýningaropnun: Aðlögun (Adaption) / Ragnhildur Stefándóttir & Valgerður Sigurðardóttir
12 júní - 17 október
Menning
Safnahúsið við Eyrartún
AÐLÖGUN
12.06 - 17.10 2026
Ragnhildur Stefánsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir
Aðlögun er óhjákvæmilegur hluti af tilverunni og við erum stöðugt að laga okkur að þeim aðstæðum sem lífið færir okkur.
12.06 - 17.10 2026
Ragnhildur Stefánsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir
Aðlögun er óhjákvæmilegur hluti af tilverunni og við erum stöðugt að laga okkur að þeim aðstæðum sem lífið færir okkur.
Í þessari sýningu mætast verk sem urðu til á ólíkum stöðum og við mismunandi aðstæður, en deila nú sama rými. Hér taka þau á sig nýja merkingu í samtali hvert við annað og það samhengi sem þau mynda saman. Aðlögun birtist ekki aðeins í samræðu verkanna heldur einnig í ferlinu að þeim. Listamennirnir hafa brugðist við breytingum, óvæntum hindrunum og nýjum áherslum.
Verkin hafa mótast af aðstæðum sínum rétt eins og mótið mótast af afsteypunni. Annað getur ekki orðið til án hins.
—
Ragnhildur Stefánsdóttir (f.1958) lauk MFA-prófi frá Carnegie Mellon University í Pittsburgh árið 1987. Hún skapar skúlptúrverk og vinnur með mótagerð og afsteypur sem leið til að rannsaka form, endurtekningu og umbreytingu. Ragnhildur hefur sýnt víða hér á landi og erlendis.
Valgerður Sigurðardóttir (f. 1992) útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og MFA-gráðu í skúlptúr frá KASK í Gent árið 2018. Hún býr og starfar í Antwerpen í Belgíu og hefur verið á skrá hjá Keteleer Gallery frá árinu 2019. Valgerður hefur sýnt verk sín víða á alþjóðlegum vettvangi.
/// ENGLISH ///
/// ENGLISH ///
ADAPTION
12 June – 17 October 2026
Ragnhildur Stefánsdóttir and Valgerður Sigurðardóttir
12 June – 17 October 2026
Ragnhildur Stefánsdóttir and Valgerður Sigurðardóttir
—
Adaption is an inevitable part of existence, and we are constantly adjusting to the circumstances life brings our way.
This exhibition brings together works created in different places and under different conditions, now sharing the same space. Here, they take on new meanings through their dialogue with one another and through the context they create together. Adaptation is evident not only in the interaction between the works but also in the processes behind them. The artists have responded to change, unforeseen obstacles, and shifting priorities.
The works have been shaped by their circumstances, just as a mould is shaped by the cast it contains. One cannot come into being without the other.
—
Ragnhildur Stefánsdóttir (b. 1958) received her MFA from Carnegie Mellon University in Pittsburgh in 1987. She creates sculptural works and works extensively with mould-making and casting as a means of investigating form, repetition, and transformation. Ragnhildur has exhibited widely in Iceland and internationally.

Valgerður Sigurðardóttir (b. 1992) graduated with a BA from the Iceland University of the Arts in 2015 and received an MFA in Sculpture from KASK School of Arts in Ghent in 2018. She lives and works in Antwerp, Belgium, and has been represented by Keteleer Gallery since 2019. Valgerður has exhibited widely internationally and in Iceland.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?