Sumarlestrargleði með Gunna Helga
1. júlí kl. 16:00-17:00
Börn
Bókasafnið Ísafirði
Gunni Helga ætlar að koma í heimsókn til okkar miðvikudaginn 1. júlí kl. 16:00 í sérstaka Sumarlestrargleði.
Hann mun lesa fyrir okkur úr bókinni sem hann er að skrifa og hvetja börnin til að lesa í sumar. Öll börn velkomin!
Eiga krakkarnir uppáhalds kafla úr bókum Gunna sem þau vilja að hann lesi upp? Foreldrar – spyrjið þau endilega, rifjið upp saman og skrifið hugmyndir í viðburðinn eða sendið okkur skilaboð.
P.S. það má koma með bækur til að árita!
Er hægt að bæta efnið á síðunni?