Orkuþing Vestfjarða

Skrá nýjan viðburð


Orkuþing Vestfjarða verður haldið föstudaginn 6. mars á Ísafirði þar sem helstu hagaðilar í orkumálum svæðisins koma saman til að ræða stöðu, framtíðarsýn og tækifæri í orkuuppbyggingu á Vestfjörðum.

Á þinginu verður farið yfir lykilverkefni í orkumálum á svæðinu, framvindu þeirra, tímalínur og þær áskoranir sem standa frammi fyrir samfélögum og atvinnulífi Vestfjarða á komandi árum. Jafnframt verður fjallað um þau tækifæri sem felast í aukinni orkuöflun, bættu orkuöryggi og orkuskiptum í landshlutanum.

Dagskrá:

11:30 Fundarsetning – Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
11:45 Vesturverk – Hvalárvirkjun
12:00 Orkubú Vestfjarða – Jarðhiti
12:15 EM-Orka – Vindorka
12:30 Hlé – Hádegisverður
13:00 Arctic Hydro – Austurgilsvirkjun
13:15 Orkubú Vestfjarða – Vatnsafl
13:30 Landsnet – Tenging við flutningskerfið
13:45 Pallborðsumræður

Er hægt að bæta efnið á síðunni?