Ólöf Dómhildur sýnir verkið „Kyn / Gender“ í Sundhöll Ísafjarðar -SUNDLAUGAMENNING

Skrá nýjan viðburð


Ólöf Dómhildur sýnir verkið „Kyn / Gender“. Ólöf vinnur í verkinu með tvær stórar ljósmyndir þar sem andlit sjást í gegnum blautt gler. Vatnið og rakinn breyta ásýndinni og gera myndirnar mjúkar og óskýrar. Verkið fjallar um kyn, sjálfsmynd og stöðu kynjanna í samfélaginu

Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir (f. 1981) er myndlistarmaður og bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2015. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006, lauk ljósmyndanámi frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2008 og námi í hagnýtri menningarmiðlun árið 2015. Í verkum sínum vinnur hún með ljósmyndir og skoðar meðal annars staðalímyndir og samfélagsleg viðhorf.

 

Verkefnið er styrkt af Þjóðminjasafni Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO. 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?