Morðgáta

Skrá nýjan viðburð


Dokkan brugghús og Harmleikur bjóða til dularfulls morðgátukvölds laugardaginn 18.apríl kl. 19:30. Rannsóknin fer fram í 2-6 manna liðum þar sem þátttakendur fá rannsóknargögn í hendurnar, skoða vettvang og setja saman vísbendingar til að komast að því hver morðinginn er.

 

Um er að ræða einstaka kvöldstund sem hentar vel fyrir vinahópa sem vilja njóta saman og takast á við spennandi ráðgátu. Léttar veitingar og fordrykkur eru innifalin í verði, sem er 10.500 kr. Aldurstakmark er 18 ár.

Skráning: harmleikurinfo@gmail.com

Er hægt að bæta efnið á síðunni?