Kaldalón - gönguferð með Ferðafélagi Ísfirðinga
21. júní kl. 08:00-19:00
Útivist
Bónusplanið á Ísafirði
Kaldalón - Dalbær - Steinshús
Sunnudaginn 21. júní kl. 8.00 frá bílastæðunum við Bónus á Ísafirði.
Keyrt inn í Kaldalón innst í Ísafjarðardjúpi þar sem við tekur gönguferð í stórbrotnu landslagi inn að Drangajökli. Að gönguferð lokinni verður komið við í Dalbæ og Steinshúsi.
Vegalengd um 7 - 8 km, göngutími um 4 klst., upphækkun svo lítil að það tekur því ekki að nefna hana.
Erfiðleikastig: einn skór.
Fararstjóri: Emil Ingi Emilsson.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?