Gönguhelgi í Önundarfirði

Skrá nýjan viðburð


Kirkjuból - Kroppstaðarskál - Þverdalur

Erfiðleikastig: 2 skór

Laugardaginn 13. júní kl. 11.00 við Kirkjuból í Korpudal. Fyrri dagurinn í göngum um innanverðan Önundarfjörð.
Gengið upp í Kroppstaðarskál og upp bratta skriðu á Bæjarfjall. Það er erfiðasti hluti göngunnar. Eftir stutta göngu um
hásléttuna er farið niður Þverdal. Gengið með ánum Þverá og Korpu uns komið er niður á veg og er þá þessum hring
nánast lokið. Landslagið á þessari hringleið er fjölbreytilegt og frá mörgu er að segja; mannlífi, sögu, jarðfræði og lífríki.
Varaleið ef það verður lágskýjað: Gengið fram Korpudal að skessukötlunum í fossinum ofanvið Selaskriðu.


Vegalengd: um 11 km, göngutími: 7-8 klst., hækkun: um 750 m.
Varaleið: Vegalengd fram og til baka: um 13 km, göngutími: 6-7 klst., hækkun: um 430 m.

 

Tunguhorn - Tungudalur - Ekkilsdalur

Erfiðleikastig: 2 skór

Sunnudaginn 14. júní kl. 9.00 við Kirkjuból í Korpudal. Seinni dagurinn í göngum um innanverðan Önundarfjörð.
Ekið að brúnni yfir Hestá þar sem gangan hefst. Gengið fram Tungudal (Hestdal eins og hann heitir hinum megin ár).
Læk einum er fylgt upp brattann að Tunguhvilftunum þremur, Fremstu-, Mið- og Yztu-. Það er úr Miðhvilftinni sem gengið
er upp á hásléttuna og þá er að sjálfsögðu tekinn smá útúrdúr og gengið fram á Tunguhorn. Það er frábær útsýnisstaður.
Leiðin niður í Ekkilsdal er hættuleg ef ekki er farið rétt í hana. Gott að hafa leiðsögn. Í botni dalsins er fallegt svæði með vötnum
og fossum. Kallast það Vatnabrekkur. Leiðin niður að Tunguá, hvar hringnum er lokað, liggur ofan á greiðfærum grjóthálsi milli
Ekkilsdals og Hólsdala. Frá mörgu er að segja á þessari leið; flóru og fánu og öðru sem augað sér en einnig frá tröllum sem algeng voru
á þessum slóðum. Landnámsmenn og annað fólk koma einnig við sögu.
Varaleið ef það verður lágskýjað: Gengið fram Hestdal. Mannvistarleifarnar í Önundargirði skoðaðar og ánni fylgt upp að fossinum Rjúkanda.


Vegalengd: um 12 km, göngutími: 7-9 klst., hækkun: alls rúmir 600 m.
Varaleið: Vegalengd fram og til baka: um 11 km, göngutími: um 6 klst., hækkun: um 350 m.


Ferðirnar 13. og 14. júní eru hugsaðar sem helgarferðir fyrir fólk utan norðanverðra Vestfjarða.
Þátttakendur fá 15% afslátt á gistingu hjá ferðaþjónustunni í Korpudal.
Ekki þarf að panta pláss fyrir tjaldsvæðið en panta þarf fyrir gistingu í húsi.

Fararstjóri: Stefán Pálsson.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?