Fyrirlestur: Næring og heildræn heilsa
29. október kl. 18:00
Viðburðir á norðanverðum Vestfjörðum
Tónlistarskóli Ísafjarðar
Beta Reynis næringarfræðingur mætir á ný til Ísafjarðar og heldur fyrirlestur um næringu og heildræna heilsu.
Búin að fá nóg af lélegu mataræði og orku sem endist ekki út daginn? Getur verið að vítamín og bætiefni skaði okkur meir en að styrkja? Og hvað er eiginlega átt við þegar talað er um heildræna heilsu?
Gefðu þér tíma til að huga að heilsunni og mættu á þennan líflega, fróðlega og heilsubætandi klukkutímalanga fyrirlestur – hér gæti verið komið upphafið að nýju og betra lífi!
Miðaverð 2.500 kr.
Sjáumst þann 29. október, kl. 18, í Tónlistaskólanum á Ísafirði.
Með heilsueflandi kveðju, Beta Reynisd
Er hægt að bæta efnið á síðunni?